Förum í loftið kl 20 annað kvöld!!!Jónatan og Ardís
Jæja gott fólk við förum í loftið á morgun kl 20:20 og lendum um 6:30 að morgni mánudags. Við tókum túristan á þetta í vikunni hérna í útlandinu fórum í sight seen um NYC og fórum á söngleikinn RENT á Broadway svo fórum við og kíktum á Amish fólkið á miðvikudaginn í Penselvaníu. Nenni ekki að skrifa meira í bili ef þið viljið tala við okkur þá hafið þið bara samband verðum í 10 daga á landinu áður en við förum til Ítalíu. NÝJAR MYNDIR. kveðja frá USAMyndirJónatan og Ardís
Hallo!
Vorum ad setja inn nyjar myndir inn a myspace.com/ardisogjonatan fra dyragradinum sem vid forum i. Hann er stadsettur i Philadelfia. Rosa stud. Thetta er i fyrsta skipti sem eg fer i dyragard, svo mer fannst rosa merkilegt ad sja ljonin, giraffana, edlurnar og fl. Her er annars allt gott ad fretta, sol og sumar og alllir ad hressast eftir sma flensu.
Heyrumst!
Ardis
Komiði sæl!Jónatan og Ardís
Jæja gott fólk. Það er mikið að við látum heyra í okkur. Það er nú ekki eins og þetta taki langan tíma að rita nokkrar línur inn á þetta blessaða blogg. En eitthvað virðist þetta vera að flækjast fyrir okkur.Páskarnir voru frekar skrítnir þetta árið. Í fyrsta lagi þá var ekkert páskafrí. Það var meira að segja skóli á föstudagin langa. Frekar skrítið. í rauninni fattaði maður ekkert að það væru páskar. Við fengum nú samt sem áður pakka frá Íslandi. Sá fyrri sem kom innihélt London Lamb og ostsem var frekar skrítinn í laginu þegar ég opnaði kassann. Eins og hann hafi soðnað eða eitthvað. Allaveg hef ég ekki séð svona útgáfu af brauðosti fyrr. Höfum ekki opnað hann ennþá en það mun koma að þvi. Kjötið var mjög gott, en ef ég á að vera hreinskilin þá var eftirvæntingin meirir fyrir seinni pakkanum. Hann innihélt nefnilega ALLT NAMMIÐ.....
Sem betur fer kom hann á föstudagin langa svo okkur var borgið. Hmmm!!!!
Íslenskt nammi er bara best í heiminum og svo fengum við líka lítil Nóa páskaegg. Okkur var boðið í mat á sunnudagin hjá vinkonu okkar. Þar var á boðstólnum kjúlli í parmesan. Mjög gott bara. Svo var aðal stuðið að mála hænuegg. Það var alveg gaman í smá tíma. Setjum myndir af því inn á myndasíðuna við tækifæri. Læt Jónatan alveg um það. Hann er núna í NY að myndast eitthvað. Gott og gaman fyrir hann.
Viljiði pæla að það eru bara 4 vikur þanngað til við komum heim. Mér finnst það geggjað. Ég get ekki beðið. Ég er voðalega mikill íslendingur í mér eitthvað. Svo er ég líka alveg komin með upp í kok af þessum lærdómi. Þetta er komið gott. En það er nú bara lokahrynan eftir. Fer í 3 próf og svo söngpróf. Verð mikið fegin þegar það verður búið. Við verðum heima í 2 vikur og fljúgum svo til Mílano, Ítalíu 26 Maí og tökum lestina þaðan til Florens. Ég er að fara á námskeið þar í 3 vikur. Söngtíma á hverjum degi, læra ítölsku á hverjum degi, tímar með undirleikara á hverjum degi og svo eru masterklassar á hverjum degi. Þetta verður vonandi gaman. Það er allavega mjög fallegt í Florens og veðrið verður vonandi gott. Ekki amalegt að sitja úti í ítölsku tímum. Jónatan kemur að sjálfsögðu með mér, og tengdafjölskylan mín eins og leggur sig. Sigurrós, Steini og litli Jónatan Freyr og tengdó. Við erum búin að leigja hús í miðbæ Florens og þetta verður örugglega bara frábært. Gott og gaman að skipta um umhverfi. Ég verð svo að vinna á snyrtistofunni þegar ég kem heim. Jebb alltaf gaman að grípa í gamla takta.
Annars er einhver limbra í mér núna. Söngkennarinn minn er með lungnabólgu takk fyrir, en ég held að ég sleppi nú við það. Þetta er bara einhver smá flensa. Það rjátlast af manni.
Annars vil ég óska Maríu litlu systir til hamingju með ferminguna. Hún fermdist á Skírdag. Voða pæja og lang sætust. Ég fékk alveg tár í augun þegar ég sá myndir af henni sem Sigurbjörg systir sendi mér. Hún er að verða eitthvað svo stór. Ég get alveg viðurkennt það að mér fannst ekkert gaman að geta ekki verið viðstödd. Eiginlega bara hálf fúlt. En svona er þetta. Við fáum bara míni veislu þegar við komum heim, því nóg var eftir af kökum. Ekki afþví að þær voru vondar, ónei. Mamma er snillingur þegar kemur að því að baka fyrir veislur.
Jæja það er best að fara að gera eitthvað, já ætli það þýði ekki að læra!!
Hehe!!! Heyrumst síðar. Þið verðið heppin ef ég skít inn færslu áður en við komum heim.........
Erla! Hvermig er svo með þetta msn hjá þér.....???
Kveðjur!
Ardis